Aðalvalmynd

Blogg

Auglýsing

Könnun

Er sumarið tíminn?

Áhugavert

Done!Arnar Guðni Kárason

Ég er hættur með þessa síðu því þetta kerfi er ömurlegt!

blog.central.is/arnario

Ég held að ég haldi bara áfram með þráðinn þar,
sjáumst þar vonandi!

SprellArnar Guðni Kárason

Heyriði mest gaman frétti ég að væri á milano.bloggar.is eða eitthvað svoleiðis! En ég er alltaf e-ð bara einn að blogga þar! Kannski ég verði bara aftur einmana og bloggi bara hér!

Nei ég segi svona!! Hver er til í pylsur og hrísgrjón á sunnudaginn?? Bara láta vita þetta verður allt reddí! Sætt og fínt!!

Pjé ess ef einhver lumar á einni íbúð í Kópavogi eða einhversstaðar þarna í borginni og vill leigja mér, mættu í hrísgrjón á sunnudaginn og við ræðum þetta!

Pís át!;**

Hvað er títtArnar Guðni Kárason

Kristófer sparkaði í fótbolta áðan, og hann fór beint í sprellann á Tedda og skórinn hans flaug sömuleiðis uppá þak á húsi! - Moment dagsins

Eitthvað slúður er í gangi um að ég skuldi brandara í hornið, það er rangt! - Svar dagsins

Öllum yrði fyrir bestu að mæta á (barna)ball 17. Júní í íþróttahúsinu í Fellabæ, alveg sama hvað þið eruð gömul þá er náttla besta hljómsveit í heimi (mílanó) að spila og það verður ógeðslega gaman! - Ábending dagsins

Agla, ertu ekkert að spá í því hvernig bíllinn þinn komst heim til þín? - Spurning dagsins

Ég kláraði síðasta 711 kallinn sem ég átti á kortinu mínu í dag - Bögg dagsins

Það er bæ ðe vei komin ný skoðanakönnun og næst þegar ég nenna að gefa mér tíma fyrir framan tölvuna kem ég með smá prófíl og kem með partí í húsið! - Nýtt í tilefni dagsins

Er partí í mínum húsum? (borið fram skrækt og gormælt) - Talmál dagsins

Stayin' Alive! - Grúv dagsins

Takk fyrir allt, kem aftur að vörmu spori! - Kveðja dagsins

ÓheppniArnar Guðni Kárason

Já í dag var ég óheppinn

Ég ætla að byrja á að vara við nammi sem er í grænum kassa (svipaður og lítill makkintos-kassi í laginu) sem er rétt hjá afgreislukössunum í bónus og kostar 129kr.. þannig er mál með vexti að í vinnunni í dag langaði mig í nammi og keypti svona, því ég hélt ég væri nú að gera góð kaup, stór kassi og kostar ekkert! Síðan labbaði ég inná grænmetiskæli (annað heimili mitt) og opnaði kassan, nei vitiði, það er einu sinni ekki nammi í helmingnum af kassanum! En samt smá nammi, og reyndar ef ég á að segja eins og er.. þá er þetta nammi samt roosalega gott!

Varðandi óheppnina, þá var ég kannski heldur bráður á mér og beit í tunguna mína, já ekkert lítið fast, og það byrjaði bara að blæða helling uppí mér, af einhverjum ástæðum það aftarlega á tungunni að blóðið fór alltaf oní kok! Já þetta kalla ég óheppni!

Ég fór samt að skoða þetta e-ð og hélt að ég hefði bara bitið heilt stykki úr, en neinei, þá er bara komin svona útstæð kúla á tunguna! Þetta er einmitt pæling sem ég hef pælt í lengi, af maður fær högg á hausinn, afhverju kemur kúla? Ætti ekki ferkar að koma hola? Bara rétt eins og þegar maður beyglar bíl eða eldspítu eða hvað annað! Þessi pæling er á svipuðum stað í lífi mínu og "Afhverju borar tannlæknirinn í tönnina til að laga holuna? Er hann þá ekki bara að stækka holuna?" og "Það er ekkert hægt að klippa á sig topp! Það er hægt að klippa hann af og líma hann á!!"

Ég er reyndar búinn að fá svar við öllum þessum pælingum, og veit meira í dag! ;)

Annnars fékk ég bara þá flugu í hausinn að skjóta þessu hérna inn.. Talandi um flugu, þá akkúrat í vinnunni í morgun, á öðru heimili mínu var ég er búa mig undir það að massa kínakálið! Sé ég þá ekki bara svona 4cm langa vespu liggja á gólfinu! Lifandi! En mér till allrar hamingju þá var henni kalt og líklega var hún veik, þannig að hún gat ekki flogið haha! Annars væri ég líklega ekkert að skrifa þetta hérna.. haa hmmm!

Takk takk,
looove Arnar;***
Hýr og glaður (þýðir það sama)

Lpp paz?Arnar Guðni Kárason

Í gær voru nú tónleikar og það var rosa kalt. Ég horfði nú samt á megnið en samt ekki seinustu hljómsveitina.

 

Mér var svo kalt á puttunum að ég samdi um það ljóð.

 

puttar kaldir píku í
pylsu var að éta
lítið er létt að gera í því
Láki fékk sér kaffi

 

Síðan fór ég á ball ásamt fríðu föruneyti (samt ekki Fríðu) og þar var nú mjög gaman.

Ég kyssti nú líka strák, það var fyndið.

 

Ég vaknaði síðan í e-ju ókunnugu húsi með karlmann mér við hlið og þá var ég mjög hræddur og dreif mig bara í vinnuna.

Það var nu mjög gaman í vinnunni... Ég elska þegar það koma 500 hundruð kínverjar og kaupa bara núðlur og lýsi og borga alltaf með 5000 þúsund kalli og klára alla skiptimyntina. Já það er það sem ég elska, og ég samdi um það ljóð.

 

dagur dapur eigi var
dansaði eins og kálfur
köku sá og köku át
kátt skemmti ég mér sjálfur (einn)

 

(takið eftir ofstuðlun í seinna ljóðinu)

 

Þetta var nú gaman

"ég vill einnig benda á smá.. http://www.flass.net/fullfrettir.php?id=882&p=1 ..þetta er fyndið!"

Hunting For Happiness!Arnar Guðni Kárason



Ég var að vinna í gær
Já ég er að fara að vinna á morgun

Mig langar í sumarfrí
Mig langar í nýjan bíl
Mig langar í snjó, frost, myrkur og jól eftir 1 mánuð
Mig langar að vera 5 ára
Mig langar í kexz
Mig langar að vera fjölfaldur, þá gæti ég allt

Annars bara ein ekki svo skemmtileg helgi liðin..
HINSVEGAR vil ég minna á næstu helgi, helgina sem ENGINN ætlar á Laugardeginum 3. Júní á IDOL-Tónleika í Íþróttahúsinu, nei það ætla nebblega ALLIR á TÓNLEIKA í Selskógi (Egilsstaðaskógi) þennan dag, tónleikarnir standa frá 18-24 og það er lofað góðri skemmtun! Þar komum við Mílanó menn fram ásamt fleirum góðum böndum, vona til að sjá sem flesta þar!
Áfengislaus skemmtun að sjálfsögðu!

Hver býst annars við því að sjá kindur á nesinu? Góður draumur!

Kveð í bili og fer að blogga ferskt og svo oft! Tilgangsstaðall skrifanna lækkaður um 7 og framhaldið kemur í ljós!

Gott og fínt bless!

I'll catch you on the flip side!Arnar Guðni Kárason

Pési Pési Pési! ..Úff ég á eftir að sakna þín! :(

Þegar ég hugsa til baka eru svona skýrustu minningar mínar af þér..
- Þegar við vorum samferða í skólann á nánast hverjum degi í gunrrskóla
- Þegar við rúúústuðum innanhúsmóti í fótbolta á reyðarfirði á árunum
- Síðustu 2 ár í Bónus, mikið sprell!
- "Róóólegur á að segja mér að vera rólegur!"
- "Síminn minn er goth!"
- "Villtu í nefið?"
- Og svo margt margt fleira..

Ég votta Jörgen, Siggu og fjölskyldu alla mína samúð, þetta er mjög erfiður tími!

Pétur nettur












Takk fyrir allar frábæru stundirnar sem við áttum saman!
Þeir deyja ungir sem guðirnir elska!

SumarfríArnar Guðni Kárason

Rétt áðan kláraði ég síðasta prófið mitt í vor! Og ég er kominn í sumarfrí! Ég ætla að byrja á því að fagna því með því að taka til í herberginu mínu!

En á svo ekki að taka á því á Jet Black Joe balli á Seyðis á morgun? Hvernig er það?

Annars bara djamm, sprell og vinna framundan, sés!

Nýtt HúsArnar Guðni Kárason

Daginn í dag, dagurinn sem er dagurinn fyrir próf í ÍSL203, þann dag hef ég ákveðið að flytja. Að sjálfsögðu er ég að tala um að skipta um bloggsíðu, fyrir þá sem vilja hafa hlutina einfalda.

Helgin er búin að vera sprell og skop, á Föstudaginn var gerður gjörningur, Týgrisdýr og Bángsi vs. Keli Keli og Val Val! Ekki leið á svo löngu þangað til dýrið sameinaðist tvínefndu fólki og Bángsinn lét platast í marga hringi! Já það má segja að gjörningurinn hafi einkennst að hlátri og tárum. Það voru gleðitár.

Svo eftir vinnu á Laugardag fór ég í fótbolta á sparkvöllinn, ásamt hluta Egilsstaða í stórri prósentutölu held ég! Auðvitað rústaði ég þessu liði, hljóp upp allan völlinn með boltann og skoraði þrennu með vinstri á innan við 4 mínútum! Geri aðrir betur! Síðan eftir ágæta sturtu var bara rúntað langt fram á nótt, Tígrisdýr og Bjarnsterinn rifjuðu upp gamla takta á hjólabretti kl. 3 um nótt, eftir áralanga fjarveru! Eftir það, þegar byrjað var að birta á ný, var hugmyndin sú að fara og ná í golfsettið og taka nokkrar holur á vellinum! Nei það gerðist ekki því miður, einhverntíman! Einhverntíman!

Annars er ég bara í pásu frá lærdómi, tvö próf eftir, ÍSL203 og SAG203, sjáum til hvernig gengur með það! En ég bíð eftir að þetta blogg-kerfi verði klárað eitthvað frekar, svo það verði hægt að hafa prófíl og slíkt. Ég mun reyna að gera eitthvað sniðugt, búinn að setji inn brandarahornið! Því ég er svo fyndinn!

Lokaorð, það er komið sumar! Takk takk!
Bjartsýnn á nýja síðu, appelsínuguli röndótti maðurinn!